16 November 2006

2.2.2007!

Góðir MH-ingar!

þá eru endurfundir útskriftarárgangs ´96 úr MH næst á dagskrá!
Föstudagurinn 2. febrúar 2007 er dagurinn sem við munum öll hittast á ný og ketsj öpp for lost times!

Við erum hér nokkur úr þessum útskriftarárgangi úr MH sem tókum okkur saman, Erla Sigurlaug Sigurðardóttir, Ólöf Embla Einarsdóttir, Fanney Karlsdóttir, Oddný Sturludóttir, Halla Helgadóttir, Brynja Baldursdóttir, Trausti Óskarsson og Gunnar Þór Þórarinsson. Við höfum þegar hafist handa við að hringja út í liðið (ykkur!) til að breiða út fagnaðarerindið mikla. Við ætlum okkur að ná í sem allra flesta útskrifaða ´96, safna saman bæði tölvupóstföngum og gsm númerum til að allir verði með í peppi og undirbúningi og fái alls ekki sjéns á að gleyma því að mæta á MH endurfundinn mikla á þessum degi!

Inn á þetta blogg mun nefndin einsetja sér að skrifa helstu fréttir af undirbúningi endurfundanna, rifja upp alls kyns ljúfar MH-minningar, setja inn fréttir af skráningu og síðast en ekki síst reyna að finna einhverjar myndir til að hlæja að!Kommentakerfið hér fyrir neðan er mikilvæg leið fyrir ykkur hin til að tjá ykkur og taka þátt í umræðunni og því hvetjum við ykkur óspart til að skrifa þar. Ef einhver vill blogga er það einnig guuuuðvelkomið og má þá hafa samband við Erlu til að fá aðgang - erlasig@nyherji.is.

Varðandi framkvæmd MH ´96 Endurfunda sér nefndin fyrir sér frekar "free-style" samkomu a la MH, eða partý meðal eðalMHinga þar sem aðalmarkmiðið er að:

1. hittast
2.reyna að þekkja hvort annað aftur
3. tala saman og rifja upp
4. hlæja sig máttlausan
5. fella gleðitár
6. drekka
7. dansa
8. djamma
9. djæfa
10. fara á massa MH trúnó...

þið skiljið hvað við erum að fara!
Í stuttu máli: Stuð að eilífu (oooo muniði ballið á Miðgarði með Palla...) þann 2. febrúar 2007.

Koma svo MH!
Gleði, gleði, gleði...

Kv,
Erla Sig. - útskr. des ´96
- æj, þið munið - þessi stóra rauðhærða á 4. borði frá matsölu... ;)